1. Almennt
Strúktúr ehf., kt. 530513-1140, með aðsetur að Síðumúla 35 í Reykjavík, leggur áherslu á örugga meðferð persónuupplýsinga sem fyrirtækið vinnur með.
Markmið þessarar persónuverndarstefnu er að upplýsa þig um hvernig Strúktúr vinnur og nýtir persónuupplýsingar.
Félagið fylgir þeim lögum um persónuvernd sem eru í gildi hverju sinni, og stefna þessi byggir á lögum nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga.
Stefnan gildir aðeins þegar Strúktúr starfar sem ábyrgðaraðili samkvæmt persónuverndarlögum, til dæmis þegar unnið er með persónuupplýsingar tengiliða fyrir hönd lögaðila sem eiga í viðskiptum við félagið eða umsækjenda um störf hjá Strúktúr.
Stefna þessi er aðgengileg á heimasíðu félagsins.
2. Hvaða persónuupplýsingar vinnum við?
Strúktúr vinnur persónuupplýsingar eftir því hvaða samband fyrirtækið hefur við viðkomandi einstaklinga. Í liðum a-d hér fyrir neðan eru yfirlit yfir hvaða upplýsingar eru unnar, tilgang og lagagrundvöll vinnslunnar.
a) Tengiliðir viðskiptavina
Hluti viðskiptavina Strúktúr eru lögaðilar. Komir þú fram fyrir hönd slíks viðskiptavinar okkar vinnum við eftirfarandi upplýsingar um þig til þess að geta átt í samskiptum og veitt þjónustu:
- nafn
- netfang
- símanúmer
- vinnustaður
- staða innan vinnustaðar
- samskiptasögu vegna sölu á vöru og þjónustu.
Þessi vinnsla á sér stað á grundvelli samnings Strúktúr við viðskiptavini.
b) Vefsíða Stúrktúr
Á vefsíðu Strúktúr getur þú sent inn fyrirspurn eða ábendingu. Við biðjum um nafn, netfang, símanúmer, tegund og efni fyrirspurnar, og stundum upplýsingar um kaupsögu.
Netfangið þitt er notað til að senda upplýsingar um þjónustu og tilboð, en þú getur alltaf afþakkað slíkan tölvupóst með því að smella á tengil í pósti.
c) Starfsumsóknir
Ef þú sækir um starf hjá Strúktúr vinnum við eftirfarandi persónuupplýsingar: ferilskrá, kynningarbréf, umsóknarform og upplýsingar úr starfsviðtali. Ef þörf er á getum við óskað eftir sakavottorði og upplýsingum frá meðmælendum, en sakavottorði er eytt eftir skoðun. Við söfnum upplýsingum aðallega frá umsækjendum sjálfum, meðmælendum og ráðningarskrifstofum til að meta hæfni til starfsins. Persónuupplýsingar eru geymdar í allt að 6 mánuði og eytt tryggilega að þeim tíma liðnum.
d) Markaðspóstur
Við notum netfangið þitt til að senda upplýsingar um viðburði, nýjar vörur og tilboð. Þú getur alltaf afþakkað tölvupósta með því að smella á tengil neðst í póstinum eða með því að senda okkur póst á struktur@struktur.is.
3. Miðlun
Strúktúr getur deilt persónuupplýsingum með þriðja aðila af ýmsum ástæðum. Þetta geta verið þjónustuaðilar eða verktakar sem sinna upplýsingatækni, samskiptum, markaðsmálum, lögfræði eða fjármálaþjónustu fyrir fyrirtækið. Það er gert vegna lögmætra hagsmuna félagsins að fela utanaðkomandi aðilum ákveðin verkefni.
Auk þess getur félagið þurft að afhenda persónuupplýsingar til eftirlitsyfirvalda þegar lög, stjórnvaldsfyrirmæli eða dómsúrskurður gera það nauðsynlegt, til dæmis með því að veita upplýsingarnar til skattayfirvalda eða lögreglu samkvæmt lagalegri beiðni eða dómsúrskurði.
Ef þriðju aðilar sem fá persónuupplýsingar eru staðsettir utan Íslands, mun Strúktúr ekki senda slíkar upplýsingar út fyrir Evrópska efnahagssvæðið nema það sé heimilt samkvæmt viðeigandi persónuverndarlögum, eins og staðlaðir samningsskilmálar, samþykki þitt eða opinber auglýsing Persónuverndar um ríki sem tryggja fullnægjandi vernd fyrir persónuupplýsingar.
4. Öryggi
Mikið er lagt upp úr öryggi persónuupplýsinga hjá Strúktúr og hefur fyrirtækið gripið til viðeigandi tæknilegra og skipulagslegra ráðstafana til að vernda persónuupplýsingar, allt með hliðsjón af eðli og umfangi vinnslu. Dæmi um slíkar ráðstafanir eru aðgangsstýringar að kerfum þar sem upplýsingar eru vistaðar og sértakir ferlar og verklag í tengslum við öryggi gagna og upplýsinga.
5. Uppruni upplýsinga og varðveislutími
Strúktúr safnar persónuupplýsingum beint frá viðskiptavinum, en einnig getur upplýsingum verið safnað frá þriðju aðilum, t.d. Þjóðskrá. Persónuupplýsingar eru geymdar svo lengi sem þarf til að uppfylla vinnslutengda eða lagalega tilgangi, og eytt þegar þeim er lokið.
6. Réttindi skráðra einstaklinga
Þú átt rétt á að fá aðgang og í ákveðnum tilvikum afrit af þeim persónuupplýsingum sem við vinnum um þig sem og upplýsingar um vinnsluna.
Við ákveðnar aðstæður kannt þú jafnframt að hafa heimild til að óska eftir því að persónuupplýsingum um þig verði eytt eða að vinnsla þeirra verði takmörkuð. Þá átt þú rétt á að fá persónuupplýsingar þínar leiðréttar, séu þær rangar eða óáreiðanlegar. Því er mikilvægt að þú tilkynnir okkur um allar breytingar sem kunna að verða á persónuupplýsingum þeim sem þú hefur látið okkur í té, á þeim tíma sem við á. Þá geta notendur í flestum tilvikum sjálfir breytt persónuupplýsingum sínum í kerfinu.
Auk þess kann að vera að þú eigir rétt á afriti af þeim upplýsingum sem þú hefur afhent okkur á tölvutæku formi, eða að við sendum þær beint til þriðja aðila.
Þegar við vinnum persónuupplýsingar þínar á grundvelli lögmætra hagsmuna okkar getur þú andmælt þeirri vinnslu. Í þeim tilvikum er við vinnum með upplýsingar þínar á grundvelli samþykkis átt þú jafnframt alltaf rétt á að afturkalla slíkt samþykki.
Ofangreind réttindi þín eru þó ekki fortakslaus. Þannig kunna lög eða reglugerðir að heimila eða skylda félagið til að hafna beiðni þinni um að nýta þér umrædd réttindi. Réttur þinn til að andmæla vinnslu persónuupplýsinga þinna vegna beinnar markaðssetningar er þó fortakslaus.
Viljir þú senda fyrirspurn beint á Persónuvernd, eða komi upp ágreiningur um meðferð þinna persónuupplýsinga, er þér ávallt heimilt að senda kvörtun til Persónuverndar. Slíkt er gert með því að senda tölvupóst á postur@personuvernd.is eða með bréfapósti til:
Persónuvernd
Laugavegi 166, 4. hæð
105 Reykjavík
Til að afgreiða fyrirspurnir munum við óska eftir staðfestingu á auðkenni skráðra einstaklinga, svo sem með ökuskírteini eða vegabréfi, þannig að upplýsingar berist ekki í hendur óviðkomandi aðila.
7. Samskipti
Ef þú óskar að nýta þau réttindi sem tilgreind eru í þessari stefnu, eða ef þú hefur fyrirspurnir varðandi vinnslu persónuupplýsinga, vinsamlegast hafðu samband við félagið á netfangið struktur@struktur.is eða í síma 588-6640. Félagið mun svara fyrirspurnum og veita leiðbeiningar um réttindi þín samkvæmt persónuverndarstefnu þessarar.
8. Breytingar
Félagið getur uppfært persónuverndarstefnu sína í takt við breytingar á lögum, reglugerðum eða verklagi varðandi persónuupplýsingar. Slíkar breytingar taka gildi þegar þær birtast á heimasíðu félagsins: www.struktur.is. Núverandi útgáfa var samþykkt 31. mars 2026.
