Fyrirtækið

Um okkur

Um okkur

Strúktúr ehf. býður heildarlausnir í byggingum úr krosslímdu timbri (CLT) og límtré. Við bjóðum einnig stálgrindarhús, yleiningar, glugga og hurðir, utanhússklæðningar og tilheyrandi fylgihluti.

Við gerum meira en að flytja inn efni. Við tökum að okkur hönnun, bæði aðaluppdrætti og burðarþolshönnun. Við sjáum líka um fullnaðarhönnun og framleiðsluteikningar húseininga í nánu samstarfi við framleiðendur. Þegar efnið er komið á byggingarstað getum við séð um vinnuliðinn, það er reisingu, gluggaísetningu og annan frágang. Viðskiptavinir geta því fengið allt á einum stað, frá fyrstu hugmynd að reistu húsi, eða aðeins þá þætti sem þeir þurfa.

Stefna okkar er að bjóða vörur og lausnir sem standast íslenskt veðurfar og uppfylla alla staðla og gæðakröfur. Við veljum samstarfsaðila af kostgæfni, hvort sem um er að ræða innlenda eða erlenda birgja.

Eigendur

Árið 2026 keyptu Jón Þór Jónsson og Vignir Guðmundsson, ásamt fjölskyldum sínum, allt hlutafé í Strúktúr. Báðir hafa starfað hjá fyrirtækinu í nokkur ár og þekkja vörurnar, birgjana og verkefnin vel. Viðskiptavinir geta því áfram leitað til sömu aðila og áður.

Starfsfólk

Við erum hér

Síðumúli 35, 108 Reykjavík
struktur@struktur.is
588-6640

Við erum alltaf klár í spjallið